Vinnureglur Vísis vegna undanþágu
01.04.2020
Fiskvinnsla á Íslandi hefur fengið undanþágu frá auglýsingu nr. 243/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsótta, þar sem hún telst efnahagslega mikilvæg eining. Vísir hefur getað starfað áfram á grundvelli þessarar undanþágu sem er þó háð ákveðnum skilyrðum. Hér eru helstu atriði sem Vísir er að gera til að standast skilyrði undanþágunnar:
- Enginn samgangur er á milli starfsstöðva og heimsóknir eru bannaðar
- Starfsfólki innan hverrar starfsstöðvar hefur verið skipt í hópa (að hámarki 20 í hóp)
- Bara einn hópur fer saman í kaffi/mat
- Dagleg þrif hafa verið aukin og sameiginleg rými eru sótthreinsuð á milli hópa
- Fjarlægð milli starfsmanna er a.m.k. 2 metrar og þar sem því verður ekki við komið er notaður hlífðarfatnaður (plastsvuntur, hanskar og hlífðargrímur)
- Ítreka mikilvægi handþvottar og hafa spritt aðgengilegt
- Ítreka mikilvægi þess að enginn komi til vinnu með flensueinkenni
Ítarlegri útlistun og vinnureglur Vísis í sambandi við undanþáguna má finna hér.