Vinnsla
-
Saltfiskvinnsla
Saltfiskvinnsla Vísis hefur verið í sama húsinu í Grindavík síðan fyrirtækið var stofnað árið 1965. Búnaðurinn þar innanhúss hefur hins tekið miklum breytingum á þeim tíma. Mikið rannsóknar og þróunarstarf hefur verið unnið til þess að verkunin varðveiti gæði hráefnisins sem best. Þessi framleiðsla er í dag mjög tæknivædd og unnin af reynslumiklu starfsfólki. Þetta tvennt gerir það að verkum að afurðirnar rata inn á bestu markaði í sunnanverðri Evrópu.
-
Frystihús
Frystihús Vísis er vel útbúið tækjum til þess framleiða fjölbreyttar afurðir, bæði ferskar og frystar. Þessi hátæknivinnsla gefur fyrirtækinu sveigjanleika án þess að fórna skilvirkninni né aflinu. Vísir hefur á liðnum árum átt afar farsælt samstarf við mörg íslensk tæknifyrirtæki og húsið ber þess glöggt merki þar sem framleiðslan byggist á íslensku hugviti, hönnun og framleiðslu.