Fréttir

50 ára afmæli Vísis

Fjölmennt var á opnu húsi Vísis á sjómannadaginn í tilefni af 50 ára afmæli fyrirtækisins þar sem gestir og gangandi skoðuðu fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda og starfsmanna. Gestum var boðið að smakka dýrindis fiskrétti eldaða úr afurðum Vísis við undirleik lifandi tónlistar auk þess sem Vísiskórinn tók nokkur lög við mikinn fögnuð gestanna. Einnig var skrifað undir 3 ára styrktarsamning við Björgunarsveitina Þorbjörn þar sem Vísir styrkir björgunarsveitina um 3 milljónir króna á ári. Í tilefni af afmælinu færði Vísir einnig björgunarsveitinni 700.000 kr peningagjöf fyrir kerru undir nýja bátinn. Björgunarsveitin var afar ánægð með samninginn og gjöfina og þakkaði fyrirtækinu ómetanlegan stuðning. Að kvöldi sjómannadags voru svo haldnir Minningartónleikar um Palla og Möggu, stofnendur Vísis, þar sem börn þeirra fluttu lög af geisladiskum sínum "Lögin hennar mömmu" og "Lögin hans pabba". Hljómdiskarnir voru til sölu um helgina og seldust mjög vel en allt andvirði sölunnar rennur til Grindavíkurkirkju. Landskunnir hljóðfæraleikarar undir stjórn Vilhjálms Guðjónssonar spiluðu með systkinunum á tónleikunum ásamt góðum gestasöngvurum. Gestasöngvarar voru barna- og barnabarnabörn Palla og Möggu, Agnar Steinarsson og sjálfur konungur sjómannalaganna Ragnar Bjarnason. Kirkjan var troðfull út að dyrum og skemmtu tónleikagestir sér konunglega og sungu með af innlifun undir lokin.
Lesa meira

Vísir hf með opið hús og minningartónleika á sjómannadaginn

Í tilefni þess að Vísir hf. í Grindavík fagnar 50 ára afmæli sínu verður fyrirtækið með glæsilega dagskrá á sjómannadeginum 7. júní á Sjóaranum síkáta. Klukkan 14 - 17 þann dag býður Vísir bæjarbúum og gestum Sjóarans síkáta að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda. Boðið verður uppá fiskismakk, afmælisköku og lifandi tónlist. Saltfiskvinnsla fyrirtækisins hefur verið starfrækt í hálfa öld að Hafnargötu 16. Fyrirtækið er nú einnig að taka í notkun nýtt hátæknifrystihús að Miðgarði 3 til að mæta breyttum áherslum í greininni. Allir velkomnir. Kl. 20:00 verða Minningartónleikar um Palla og Möggu [stofnendur Vísis] í Grindavíkurkirkju. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni 50 ára afmælis Vísis hf. Þar flytja börn þeirra Palla og Möggu hárómantísk sjómannalög af nýútgefnum diski þeirra „Lögin hans pabba“. Með þeim eru landskunnir hljóðfæraleikarar undir stjórn Vilhjálms Guðjónssonar og sérstakur gestasöngvari verður Ragnar Bjarnason. Diskurinn verður til sölu á staðnum og rennur söluandvirði hans óskipt til Grindavíkurkirkju. Frítt inn og allir velkomnir.
Lesa meira

Vísir með bás á sjávarútvegssýningunni í Brussel

Eins og undanfarin ár tók Vísir þátt í sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global í Brussel sem haldin var 21. – 23 apríl sl. Sjávarútvegssýningin er stærsti viðburður ársins í sjávargeiranum þar sem kaupendur og seljendur sjávarafurða og tækja til fiskvinnslu bera saman bækur sínar. Meðan á sýningunni stóð var undirritaður samningur milli Vísis hf og Marels um kaup á tveimur FleXicut vélum í frystihús Vísis að Miðgarði. Góð aðsókn var á bás Vísis en óhætt er að segja að básinn hafi vakið athygli vegna nýs útlits í tilefni af 50 ára afmæli Vísis hf á þessu ári. Að auki hýsti básinn fyritækið Haustak sem er dótturfyrirtæki Vísis og Þorbjarnar. Haustak sér um framleiðslu og sölu á þurrkuðum afurðum. Margir viðskiptamenn heimsóttu básinn auk þess sem nýjir áhugasamir kaupendur kynntu sér vöruframboð Vísis og Haustaks.
Lesa meira

Vísir kaupir tvær FleXicut vélar frá Marel

Í dag var skrifað undir samning við Marel um kaup á tveimur FleXicut vélum, en Vísir hefur í samstarfi við Marel verið að þróa vélina síðan í byrjun árs. Fyrsta vélin verður sett upp í maí og sú seinni síðar á árinu. Samkvæmt Pétri Hafsteini Pálssyni, framkvæmdastjóra Vísis, er FleXicut "tímamótalausn sem færir hátæknina beint inn í hjarta fiskvinnslunnar sem hefur áhrif á allt heildarferlið." Ennfremur bendir hann á að þetta sé eitt stærsta skref í átt að sjálfvirknivæðingu sem við höfum séð í áraraðir. “Með tilkomu FleXicut getum við aukið vöruframboð okkar til muna og tryggjum hámarksnýtingu og gæði í hvert sinn sem er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur,“ segi Pétur.
Lesa meira

Vísiskórinn á Borgarbókasafninu

Hinn fjölþjóðlegi kór Vísis söng á Café Lingua á Borgarbókasafninu í gær við góðar undirtektir. Café Lingua er tungumálavettvangur þar sem markmiðið er "að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands með fólki hvaðanæva að og auðgað mannlíf og menningu ásamt því að vekja forvitni borgarbúa á heiminum í kringum okkur" samkvæmt vef Borgarbókasafnsins. Kórinn söng lög á íslensku, pólsku, serbnesku og tælensku og spjallaði við gesti um lögin, samstarfið og tilurð textanna. Meðfylgjandi mynd var tekin af kórnum litríka á Café Lingua í gær.
Lesa meira

Starfsfólk Vísis afhendir Víðihlíð minningargjöf

Þann 5.mars afhentu starfsmenn Vísis hjúkrunarheimilinu Víðihlíð minningargjöf í minningu Páls Hreins Pálssonar, aðaleiganda Vísis, sem lést 16.febrúar síðastliðinn. Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa starfsfólks Vísis og Víðihlíðar við afhendinguna.
Lesa meira

Fræðslustjóri að láni fyrir Vísir hf. í Grindavík

Í gær 12. janúar undirritaði Vísir hf. samning við Landsmennt um fræðslustjóra að láni. Þá var undirritaður samningur við Markviss ráðgjafa frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) um framkvæmd verkefnisins.
Lesa meira

Íslenskukennsla

Í síðustu viku voru pólskir starfsmenn Vísis á íslenskunámskeiði, en gott var að geta nýtt tímann áður en nýja frystihúsið fer í gang.
Lesa meira